10.01.2007 22:57:50 / grimurd
Ein peran í eldhúsinu sprakk í gær þegar ég opnaði ísskápinn. Þetta
fékk mig til að pæla aðeins í eðlisfræði. Ég fór að grafa aðeins í
gamla menntaskóladótinu mínu og fann gömlu eðlisfræðibókina frá því
í öðrum bekk. Ég gluggaði aðeins í hana en sofnaði í hægindastólnum
í stofunni og þegar ég vaknaði var komin nótt svo ég fór að sofa
aftur.
Ég þurfti svo að fara í búð í dag, ekkert að borða. Það er víst
ekki til Orange Cheerios nema bara á amerískum dögum - komst að því
eftir hálftíma rugl í afgreiðslufólkinu og verslunarstjóranum. Ég
sagði þeim að það væri til í hverri einustu Wal-Mart verslun í
Bandaríkjunum og að það væri skrítið að þau væru ekki með þetta. Er
það bara ég eða eru allar verslanir hérna á landi með óhæft
starfsfólk? Ég fer ekki í þessa verslun aftur.
Ég rakst þó á gamlan bekkjarfélaga minn úr Torfholtsskóla sem ég
hef ekki séð í mörg ár. Hann virtist ekki vilja að ég myndi búa til
heimasíðu fyrir hann þrátt fyrir að hann ætti enga. Hann er víst að
vinna sem einhverskonar ráðgjafi hjá borginni. Ekki merkilegasta
starf í heimi ef þú spyrð mig. Ekki græt ég að þurfa ekki að standa
í heimasíðugerð fyrir hann.
Over and out,
Grímur
»
09.01.2007 15:05:39 / grimurd
Ég var á labbinu í íbúðinni þegar ég tók eftir því að einhverskonar
svartur hlutur stóð út undan þvottavélinni. Ég ætlaði að spyrja
Efraim hvað hann héldi að þetta væri en hann svaraði ekki þannig að
ég tékkaði sjálfur á þessu. Það kemur í ljós að þetta var bara
TridemConnect snúran sem ég týndi um árið, fínt að finna hana
aftur. Ég ætlaði einmitt að athuga hvort það væri ekki hægt að
tengja saman gamla Tridem örbylgjurafalinn við nýja
viðvörunarkerfið á tölvunni minni. Maður getur aldrei verið of
varkár.
Annars skil ég ekkert af hverju það er ekki hægt að nota USF
netstaðalinn til að skrifa færslurnar á þessari bloggsíðu, hann er
líklega útbreiddasti United Stodrinov staðallinn á vesturlöndum
(allaveganna segir Rasmus mér það). Ég sendi póst á vefstjórnina
síðasta fimmtudag og hef ekki fengið neitt svar ennþá, kannski er
það útaf helgarfríi starfsmanna. Mér finnst allaveganna fáránlegt
að nota HTML, það er líklega eitt óhreinasta tungumálið af þeim
öllum.
Það er kominn 9. janúar og samt eru atvinnuleysisbæturnar ekki
komnar, ég er að bíða eftir þeim svo ég geti fjárfest í
Hanna-Barbera safninu á Betamax spólum (já, þið heyrðuð rétt,
upprunalegu Betamax útgáfurnar sem voru bara framleiddar í 150.000
eintökum). Það er einhver fábjáni að selja þetta á netinu á bara
1500 dollara, mamma var búin að samþykkja að borga það sem vantar
uppá. Alveg ótrúlegt hvað fólk er tilbúið til að láta þetta frá sér
á lágu verði, þessi infamous_ink hlýtur að vera eitthvað
peningaþurfi. Allir á IMDb spjallborðinu eru sammála mér um að
þetta sé að minnsta kosti 4000 dollara virði svo ég verð að teljast
lukkunar pamfíll.
Over and out,
Grímur
»
09.01.2007 02:25:42 / grimurd
Ég gerði voða lítið í dag. Litli kötturinn sem kemur oft í heimsókn
birtist ekkert í dyrunum í dag, þrátt fyrir að ég hafi sett út skál
af brauði og mjólk. Ég beið ábyggilega í tvo klukkutíma með
borðtenniskúlu sem ég ætlaði að grallast í kettinum með. Ég var þó
ekki alveg aðgerðarlaus í biðinni, ég segi það ekki. Ég hlustaði á
rokkland á Rás 2 á meðan og heyrði tvö góð lög með Nirvana og The
Cardigans.
Reyndar spjallaði ég aðeins við tyrkneska vin minn, Efraim, á
Skype. Hann sagði allt gott að frétta en hafði ekki mikinn tíma til
að spjalla eins og reyndar dálítið oft uppá síðkastið. Hann er víst
búinn að eignast einhverja konu og það er barn á leiðinni. Ég vona
bara að það skemmi ekki fyrir verkefnið með gagnagrunnana sem við
ætluðum að vinna saman, ég hef lengi hlakkað til að klára það og
koma því út á internetið. Ég er reyndar eiginlega alveg viss um að
konan hans komi í veg fyrir velgengni hans og ég er búinn að senda
tölvupóst á hann þess efnis og bíð eftir svari.
Ég var líka að rífast við einhverja bjána á disney-spjallborðinu
sem héldu því fram að Trinesco útgáfurnar af Andrésar Andar
leikföngunum frá 1949 væru verðminni en þær sem kæmu beint frá
Mattel sem er auðvitað ekki rétt. Það er svosem skiljanlegt að þeir
sem vita ekki mikið um efnið draga þessar ályktanir og ég benti
ducky_luck og underworld521 á það en þeir vildu ekkert hlusta. Ég
hringdi í Efraim á Skype og hann sagðist vera sammála mér eftir að
ég útskýrði málið fyrir honum en hann sagðist svo þurfa að fara að
slá lóðina svo við kvöddumst í bili.
Á morgun ætla ég að kíkja á infra-tycoon.com, ég hef heyrt góða
hluti um þann vef. Mér skilst að þeir viti sínu viti þegar kemur að
samanburði á steinsteyputegundum og leggi áherslu á það sem skiptir
máli; blýmagn og karbónatstig. Það eru nefnilega ekki bara
rannsóknirnar sem eru áhugaverðar heldur líka þessi samanburður. Ég
fékk áhuga á þessu öllu saman þegar ég kynntist Rasmus Jordvik í
gegnum Skype, en hann er víst stórt nafn í þessum bransa. Ég er
búinn að bjóðast til að búa til heimasíðu fyrir hann og hann er
hugsa málið.
Over and out,
Grímur
»